Um okkur
Eyrarfiskur er fjölskyldufyrirtæki á Stokkseyri með rætur sem ná aftur til ársins 1981. Fyrirtækið var stofnað af Jóni Karli Haraldssyni og Guðleifu Ernu Steingrímsdóttur, sem bæði eru fædd og uppalin á Stokkseyri. Frá upphafi hefur áherslan verið skýr – gæði, fagmennska og ástríða fyrir góðu hráefni.
Jón Karl starfaði um árabil sem skipstjóri og lagði sterkan grunn að fyrirtækinu með reynslu sinni og þekkingu úr sjávarútvegi. Í gegnum árin hefur Eyrarfiskur þróast og vaxið, en haldið fast í þau gildi sem fyrirtækið var byggt á.
Árið 2019 tók Baldvin Aldar Ingibergsson við rekstrinum þegar fyrirtækið færðist áfram innan fjölskyldunnar. Baldvin hefur nærri 30 ára reynslu af fiskframleiðslu og starfaði áður sem framleiðslustjóri hjá Fiskkaup hf., þar sem hann byggði upp víðtæka þekkingu og reynslu í greininni.
Í dag sameinar Eyrarfiskur áratuga reynslu og nútímalega hugsun. Við leggjum metnað í að framleiða hágæða fiskafurðir með áherslu á fagleg vinnubrögð, traust samstarf og virðingu fyrir íslenskri sjávarútvegshefð.
