Bitafiskur

Framleiðslan krefst vandasamra vinnubragða. Í vinnsluferlinu á sér stað mikil rýrnun á hráefni og er notast við þá puttareglu að af hverjum 12 kílóum af ferskum fiski megi vinna 1 kíló af harðfisk.

Þegar afurðir koma í hús eru þær hausaðar, flakaðar og roðrifnar. Þá tekur við beina- og ormahreinsun á ljósaborði. Því næst er flökunum raðað á grindur og þau sett í þurrkherbergi. Hitastigi við þurrkun er stjórnað með sérstökum strompum sem hægt er að opna og loka fyrir. Vinnslutími getur spannað allt frá fjórum og upp í sjö daga, en slíkt fer allt eftir úrkomumagni utandyra. Þess má geta að inn í klefa eru til staðar rafstýrð þurrkunartæki sem sjúga mestallan raka úr lofti.

Að þessum tíma liðnum eru þau höggin niður í smábita í sérhannaðri vél. Því næst er bitum raðað á

grindur og fryst enn á ný. Eftir seinni umferð frystingar eru afurðir enn á ný settar í þurrk. Að því loknu eru þær tilbúnar í neytendapakkningar.

Næringargildi í 100g
Orka 1444 kj/340 Kcal
Prótein 83,9 g
Fita 0,48 g
Kolvetni 0 g
Trefjar 0 g
Steinefni 7,4 g
Vatn 10,9 g
Salt 2,3 g